Fánar

Samsýning

17.6.2024 — 25.8.2024

Safnahúsið

Fánar eru tákn sem gegna margs konar hlutverki. Þjóðfánar eru tákn lands og þjóðar og lög um íslenska fánann voru fyrstu lögin sem voru samþykkt á eftir stjórnarskránni 17. júní árið 1944. Íslenski fáninn fékk hins vegar staðfestingu konungs þegar árið 1915.

Í Sýningarstofu Safnahússins við Hverfisgötu verður sjónum beint að fjölbreyttum verkum úr safneign Listasafns Íslands þar sem fánar eru útgangspunkturinn. Fánarnir eru af ýmsu tagi: pappírsfánar, tréfánar, ósýnilegir fánar, prjónaðir í sauðalitunum og í málverki. Tvö elstu verkin á sýningunni eru eftir Þórarin B. Þorláksson. Annars vegar málverk af svokallaðri fánanefnd og hins vegar af Alþingishúsinu, þar sem íslenski fáninn blaktir við hún. Yngsta verkið á sýningunni, Daufur skuggi, er textílverk frá 2015 eftir Unnar Örn Auðarson Jónasson.

Áhugavert er að sjá hvernig listamenn hafa í gegnum tíðina fjallað um íslenska fánann, stundum á upphafinn hátt og með andakt, eins og verk Þórarins bera með sér, en stundum með nístandi háði þar sem potað er í þjóðerniskenndina. 

Sýningin er sett upp í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli, verður opnuð 17. júní 2024 og stendur til 25. ágúst 2024.

Salur

1

17.6.2024 25.8.2024

Listamenn

Ásgrímur Jónsson

Daði Guðbjörnsson

Daníel Magnússon

Jóhannes Kjarval

Snorri Ásmundsson

Unnar Örn Auðarson

Wiola Ujazdowska

Þórarinn B. Þorláksson

Örn Ingi Gíslason

Í samvinnu með

Lýðveldið Ísland 80 ára

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17